|
Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju 2010 er nú lokið, en hún hófst á pálmasunnudag 28. mars og lauk sunnudaginn 11. apríl. Yfir sex þúsund gestir sóttu hátíðina heim og tóku mörghundruð manns þátt í undirbúningi hennar og flutningi. Tugir glæsilegra viðburða voru á dagskrá hátíðarinnar, í flutningi og umsjón bæði íslenskra og erlendra listamanna.
Lokaviðburður hátíðarinnar var flutningur Mótettukórs Hallgrímskirkju, Brahms-hljómsveitar Kirkjulistahátíðar, Birgitte Christensen sópransöngkonu og Andreasar Schmidt baritónsöngvara undir stjórn Harðar Áskelssonar á Þýskri sálumessu Johannesar Brahms, á tvennum tónleikum. Hlutu tónleikarnir fjórar og hálfa stjörnu í umfjöllun tónlistargagnrýnanda Morgunblaðsins mánudaginn 12. apríl.
Kirkjulistahátíð 2010 þakkar öllum gestum hjartanlega fyrir komuna og þátttakendum fyrir ánægjulegt og glæsilegt samstarf.
|
|
|
Hér fyrir neðan gefur að líta grein eftir Ólaf Gíslason, þar sem fjallað er um verk Ólafar Nordal sem er myndlistarsýning Kirkjulistahátíðar 2010 og opnaði í Hallgrímskirkju á pálmasunnudag. Verk Ólafar ber yfirskriftina Leiðsla, en greinin heitir Leiðsla - Um samband fagurfræðilegrar og trúarlegrar reynslu í verki
Ólafar Nordal og er áhugaverð lesning sem setur verkið í heimspekilegt og trúarsögulegt samhengi.
Viðtal við Ólöfu Nordal (20mín)
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Með því að smella hér má skoða myndir frá Kirkjulistahátíð 2010. Þar gefur m.a. að líta myndir frá helgigöngunni á upphafsdegi hátíðarinnar, helgun biskups Íslands á nýjum hurðum Hallgrímskirkju, skírn barns í hátíðamessu á pálmasunnudag, úr tónlistarandakt í hádeginu, og æfingum og flutningi á Þýskri sálumessu Brahms.
Ljósmyndarar eru Eddi, Hrefna Haraldsdóttir o.fl.
|
|
|