Trompetleikararnir Jóhann Nardeau og Baldvin Oddsson ásamt David Cassan organista frá Frakklandi flytja tónlist eftir Charpentier, Vivaldi, Händel o.fl.
Segja má að Jóhann og Baldvin hafi slegið í gegn á Hátíðarhljómum um síðustu áramót í Hallgrímskirkju og nú koma þeir aftur með hinum margverðlaunaða franska organista David Cassan sem vann m.a.fyrstu verðlaun í Alþjóðlegu orgelkeppninni í Chartre í Frakklandi 2017. Milli verka leikur David Cassan af fingrum fram.
Miðaverð 4.900 kr.