Elmar Gilbertsson

Elmar Gilbertsson

Elmar Gilbertsson

Elmar Gilbertsson útskrifaðist frá Söngskóla Sigurðar Demetz vorið 2007. Eftir það lá leiðin til Amsterdam í Hollandi þar sem hann lagði stund á mastersnám í óperusöng við Tónlistarháskólann í Amsterdam og Konunglega tónlistarháskólann í Den Haag. Kennarar hans þar voru Jón Þorsteinsson og Peter Nilson.

Eftir námið var Elmar tekin inn í Óperustúdíó Hollensku óperunnar og starfaði þar í tvö ár. Þá fékk hann fasta stöðu og síðar gestaráðningu hjá óperunni í Maastricht í Hollandi þar sem hann hefur starfað mikið síðustu ár jafnhliða störfum víðsvegar um Evrópu. Ber þar helst að nefna óperuhúsin í Nantes, Toulon og Aix en Provence í Frakklandi, Bochum í Þýskalandi, Brno í Tékklandi sem og Barbican Centre í London og Ríkisóperuna í Amsterdam. Elmar hefur sungið og túlkað allnokkrar af persónum óperubókmenntanna, þar á meðal Tamino í Töfraflautunni, Don Ottavio í Don Giovanni, Ferrando í Così fan tutte, Alfred í Leðurblökunni, Elvino í La Sonnambula, Nerone í Krýningu Poppeu og Kudrjaš í Káťa Kabanová eftir Janácek.

Elmar hefur einnig sungið hlutverk prinsins í Öskubusku eftir Rossini hjá Maastricht-óperunni, hlutverk Mímis í Rínargulli Wagners á hinni virtu Ruhrtriennale listahátíð í Þýskalandi og hlutverk Hertogans af Mantua í Rigoletto eftir Verdi. Elmar hlaut Grímuverðlaunin í flokknum söngvari ársins og Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngvari ársins í flokki sígildrar og samtímatónlistar fyrir hlutverk Daða Halldórssonar í óperunni Ragnheiður eftir Gunnar Þórðarson sem sett var upp hjá Íslensku óperunni 2014.

Hann söng hlutverk Lenskys í uppfærslu Íslensku óperunnar á Evgení Onegin haustið 2016 og hlaut aftur Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir túlkun sína. Elmar söng tenórhlutverkið í Passíu eftir Hafliða Hallgrímsson á tónleikum í Hallgrímskirkju með Mótettukórnum í apríl 2015 og einnig á afmælistónleikum í tilefni af 30 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju í október 2016 og h- moll messuna í tilefni af 35 ára afmæli Mótettukórsins, en á námsárum sínum var hann um tíma félagi í kórnum.

Hann var einnig einsöngvari á Jólatónleikum Mótettukórsins 2017. Elmar er sem stendur fastráðinn við Staatsoper í Stuttgart í Þýskalandi.