Graduale Nobili

Graduale Nobili var stofnaður af Jóni Stefánssyni árið 2000 skipaður um 24 konum sem allar hafa lagt stund á tónlistarnám. Kórinn hefur unnið til fjölda verðlauna í alþjóðlegum kórakeppnum um heim allan og frumflutt fjölda verka eftir bæði íslensk og erlend tónskáld. Kórinn hefur einnig gefið út nokkrar plötur en platan ,,In paradisum” frá árinu 2008 var m.a. tilnefnd til Íslensku Tónlistarverðlaunanna.

Kórinn vakti mikla athygli þegar hann söng inn á plötu Bjarkar Guðmundsdóttir, Biophilia og ferðast með henni um heim allan um tveggja ára bil. Árið 2014 voru jólatónleikum kórsins sjónvarpað á RÚV og um alla Evrópu. Kórinn var valinn til að syngja með stórhljómsveitinni Fleet Foxes í Eldborg á Iceland Airwaives árið 2017. Stjórnandi kórsins er Þorvaldur Örn Davíðsson.