Oddur Jónsson

Oddur Jónsson

Oddur Jónsson

ODDUR ARNÞÓR JÓNSSON, barítón, söng aðalhlutverkið (Michael) í Brothers, margverðlaunaðri óperu Daníels Bjarnasonar á Listahátíð 2018 og hlaut fyrir það Íslensku tónlistarverðlaunin sem söngvari ársins. Hann var útnefndur Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2014 fyrir hlutverk sitt í Don Carlo, sem var frumraun hans í Íslensku óperunni.

Oddur lauk burtfararprófi frá Söngskólanum í Reykjavík og stundaði framhaldsnám í óperu- og ljóðasöng við Mozarteum háskólann í Salzburg, Austurríki. Hann hlaut Lilli Lehmann viðurkenninguna fyrir framúrskarandi meistarapróf.

Oddur hefur sungið fjölda óperuhlutverka við Íslensku óperuna og ber þar helst að nefna Don Giovanni, Figaro í Rakaranum frá Sevilla og Rodrigo í Don Carlo. Önnur óperuhlutverk sem hann hefur sungið eru Wolfram í Tannhäuser (Óperuhúsið í Chemnitz, Þýskalandi), Schaunard í La bohème (Reisopera, Hollandi) og Prins Yeletsky í Pique Dame (Opernbühne Bad Aibling, Þýskalandi).

Sem ljóðasöngvari hefur hann flutt Das Lied von der Erde eftir Gustav Mahler í Garnier-óperunni í París, Vetrarferðina og Schwanengesang á Schubert hátíðinni í Vilabertran á Spáni. Oddur hefur komið fram með Mótettukórnum í Hallgrímskirkju og Herði Áskelssyni í Mattheusarpassíunni eftir Bach, Solomon eftir Händel, Te Deum eftir Charpentier og Messu í F-dúr eftir Bach.

Oddur hefur hlotið fjölda viðurkenninga í alþjóðlegum ljóðakeppnum. Hann fékk Schubert verðlaunin og verðlaun sem besti ljóða- og óratóríu flytjandinn í Francesc Viñas keppninnni í Barcelona. Hann sigraði Brahms-keppnina í Pörtschach í Austurríki og varð þriðji í Schubert keppninni í Dortmund, Þýskalandi.