Á menningarnótt, laugardaginn 22. ágúst, verður sístreymandi sálmaflutningur, sannkölluð tónlistarveisla í Hallgrímskirkju.
Í ár verða meðal annars frumfluttir 5 nýir sálmar eftir 10 íslenskar konur.
Fram koma King’s Men frá Cambridge, Schola cantorum, Mótettukór Hallgrímskirkju, Dómkórinn, Söngsveitin Fílharmónía, Orlando Singers og Kór Akraneskirkju ásamt organistunum Jónasi Þóri, Kára Þormar og Eyþóri Wechner. Tónleikarnir standa milli kl. 15 og 21 og er aðgangur ókeypis.