Olivier Latry, organisti Notre Dame í París og einn fremsti orgelleikari í heiminum í dag, hélt í gærkvöldi tvenna tónleika á Kirkjulistahátíð og gjörsamlega heillaði áheyrendur með skýrt mótaðri og innblásinni spilamennsku sinni.
Á fyrri tónleikunum lék Latry verk eftir Grigny, Paulet, Mobberley og Duruflé og lauk tónleikunum með spuna. Hann fékk í hendurnar tvö stef sem hann þekkti ekki áður, Gefðu að móðurmálið mitt og Víst ertu Jesú kóngur klár og spann út frá þeim á svo tilkomumikinn hátt að áheyrendur voru agndofa.
Þá vakti einnig aðdáun hversu vel Latry nýtti hljóðheim Klais-orgelsins og höfðu nokkrir á því orð að þeir hefðu á þessum tónleikum heyrt hljóð og tóna sem þeir hefðu hreinlega ekki áður heyrt frá þessu magnaða hljóðfæri.
Á síðari tónleikunum lék Latry ásamt Shin-Young Lee eiginkonu sinni fjórhenta útgáfu af Vorblóti Stravinskís. Þessi aðlögun á hljómsveitarverkinu er byggð á útsetningu tónskáldsins sjálfs fyrir tvö píanó og var sérstaklega ánægjulegt hversu litrík raddnotkun orgelsins var – hún jafnaðist hreinlega á við heila sinfóníuhljómsveit – og spilamennskan skýr og taktföst. Frumkraftur verksins skilaði sér með miklum glæsibrag og unun var að horfa á fallegt samspil þeirra hjóna.