Salómon fær fimm stjörnur

Fullt hús og fagnaðarlæti á opnunarhelginni
17/08/2015
Olivier Latry sló í gegn
21/08/2015

Salómon fær fimm stjörnur

Screen Shot 2015-08-18 at 09.12.57Jónas Sen tónlistargagnrýnandi var yfir sig hrifinn af flutningnum á Salómoni í Hallgrímskirkju um helgina: Fimm stjörnur í Fréttablaðinu í dag!

„Algerlega dásamlegir tónleikar með hrífandi söng og glæsilegum hljóðfæraleik – Salómon var opinberun – Þetta drama skilaði sér fullkomlega undir kraftmikilli stjórn Harðar Áskelssonar – Fjölmörg kóratriði voru meistaralega vel útfærð af Mótettukór Hallgrímskirkju. Þau voru svo flott að maður fékk gæsahúð hvað eftir annað. Kórinn var svo sannarlega í banastuði.“

Þá fer Jónas lofsamlegum orðum um alla einsöngvarana sem og hljómsveitina. Lýkur hann rýninni með þessum orðum:

„Það er þrekvirki að koma svona löngu tónverki til skila til áheyrenda án þess að þeir sofni. Þarna var tónlistin hreinasta opinberun. Maður naut hvers tóns og öðlaðist innsýn í veröld Gamla testamentisins, hún birtist manni ljóslifandi. Mikill er máttur listarinnar! Tónlistarlífið í Hallgrímskirkju stendur svo sannarlega í blóma.“

Eftirlátum einum tónleikagestinum orðið að lokum en hann var síður en svo búinn að fá nóg eftir hátt í fjögurra tíma tónleika: „Hefði gjarnan hlustað í tvo tíma í viðbót!“